20 dagar í skemmtun.

Jæja gott fólk nú fer að styttast í að við munum hafa gaman samanWizard. Eitthvað klikkaði hjá okkur með tilkynninguna Blush en vonandi eru nú flest allir búnir að frétta af þessu. Allavega eru flest allir búnir að fá SMS frá okkurJoyful. EN SAMT ÆTLUM VIÐ AÐ MINNA Á AÐ ÞAÐ ÞARF AÐ BORGA FYRIR 2 MAÍ OG SENDA KVITTUN Á karenasta@msn.com. Endilega verið duglega að kvitta fyrir ykkur og senda okkur smá skilaboð, þó ekki væri nema að gefa okkur smá spark í rassinnTounge.

     kv nefndin.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Guðbjörg Snæland

Ég veit til þess að einhverjir hafa verið að frétta þetta út í bæ og hafa jafnvel haldið að um einkasamkvæmi væri að ræða. Ég held að sá misskilningur muni eyðast þegar þetta birtist í Víkurfréttum. Er einhver með sambönd í íþróttahúsunum í Keflavík og gæti kannski tekið að sér að panta sal á laugardeginum? Þá gætu þeir mætt sem hafa tíma og áhuga..... og leikið sér eitthvað saman.Hlakka til að sjá ykkur.

Kristín Guðbjörg Snæland, 28.4.2008 kl. 15:25

2 identicon

Ég sendi tilkynningu inn á VF og hún átti að birtast, veit ekki af hverju hún kom ekki. Gæti verið að það hafi verið v. sumardagsins fyrsta en blaðið kom fyrr út þess vegna. Ég sendi aftur póst og vonandi kemur þetta núna. En hins vegar held ég að það væri sterkur leikur að setja t.d. smáauglýsingu í Fréttablaðið því það eru náttúrulega ekki allir í KEF.
Kveðja,
Hulda

Hulda G. Geirsd. (IP-tala skráð) 30.4.2008 kl. 13:17

3 identicon

Já Víkurfréttir klikkuðu alveg, voru búin að fá tilkynninguna mjög tímanlega og lofuðu á birta hana í síðasta blaði en viti menn ekki stakt orð. Vonandi kemur þetta á morgun, annars verður við að finna aðrar leiðir. Allir sem lesa þetta blogg okkar ættu að vera duglegir að bera út boðskapinn

Hlakka til að hitta ykkur öll !

Gerður

Gerður (IP-tala skráð) 30.4.2008 kl. 20:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband