NÝJUSTU UPPLÝSINGARNAR ALLIR AÐ LESA.

Jæja gott fólk nú er þetta allt að smella saman Cool. Best að byrja á byrjuninni,það eru um 70 manns sem hafa skráð sig og borgað W00t. Endilega ef að það eru einhverjir sem vilja enn bætast við hópinn þá er bara að vera búið að borga fyrir kl 12:00 á föstudaginn.  þeir sem ætla eða vilja vera með leiki eða aðra uppákomu endilega hafið með ykkur þá leikmuni sem til þarf Wink. Nóg er að hafa samband við okkur á staðnum á laugardaginn og munum við þá aðstoða við að koma því í kring. Eins og þið vitið var Einar svo góður að redda íþróttasal Grin og er sá salur í Íþróttahúsinu við Sunnubraut, við ætlum að hittast þar kl 15:00 ( á ég eftir að fá þann tíma staðfestan frá Einari). Þar munum við hafa gaman í klukkustund nú þeir sem vilja skella sér í sund á eftir endilega gerið það. Nú kl 19:00 munum við svo hittast niður á DUUS (nýja salnum) og þar mun nefndin taka á móti ykkur með bros á vör. Þar verður boðið upp á pinnamat og skemmtun, við erum búin að fá tilboð í gleðidrykki Wizard og hér koma þeir.

BJÓR STÓR                          KR  500 InLove

VÍN HÚSSINS STÓR FLASKA     KR  2.600 Whistling

LÍTIL FLASKA AF RAUÐVÍNI    KR  700 Tounge

LÍTIL FLASKA AF HVÍTVÍNI       KR  700 Smile

SKOT (EINFALDUR)                KR  500 Happy

Vona að þetta gefi ykkur smá innlit í það sem í boði er, svo er aldrei að vita á hverju við lummum en það fáið þið ekki að vita fyrr en á þessu gleði kvöldi. Munið bara að taka brosið og kátínuna með í partýið þá á þetta eftir að verða hið besta kvöld.

kv Nefndin

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Guðbjörg Snæland

Hikkkkk  varð bara hálf drukkin af spenningi þegar ég las síðustu skilaboðin....!!!! Nú er bara að taka fram gamla diskógallann og reyna að troða sér í hann... múhahahaha. Hlakka svo til að ég kem suður á fimmtudaginn

Kristín Guðbjörg Snæland, 14.5.2008 kl. 11:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband