Færsluflokkur: Bloggar

Myndir

Ef þið eruð með myndir sem ykkur langar til þess að setja inn, þá endilega hafið samband við okkur.  Hvað er skemmtilegra en að skoða myndir og aftur myndir.  Ég veit að það er til hellingur af myndum í albúmum en kanski eitthvað minna á tölvu þar sem svo fá okkar áttu stafræna myndavél í síðasta "hittingi"  en það er nú ekki vandamál heldur bara eitthvað sem við ráðum fram úr, ekki satt.

Allt komið á fullt.

Við erum nú að redda okkur símanúmerum og Emailum, ef að þið gætuð verið svo góð að láta það berast að við erum að koma upp lista svo að við getum haft samband við alla. Endilega hafið samband við einhvað af Emailunum hér að neðan og skráið ykkur á þetta frábæra FERMINGARAFMÆLI sem er framundan.

 

    kv     Nokkur sem tóku sig saman.


25 ár síðan við vorum fermd í Keflavíkurkirkju.

Góðir hálsar hér mun koma allar þær upplýsingar sem verða í sambandi við Fermingarafmælið okkar. Endilega látið vita af ykkur og mætum sem flest á þessa skemmtun okkar. Við munum koma með dagsetningu seinna en ekki örvænta við erum farnar að pæla og skoða allt.

  

   Kv  nokkur sem tóku sig saman.


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband