17 maí gleðin

Jæja gott fólk, þá er búið að setja inn fullt af myndum.  Ég vona að þið eigið eftir að hafa jafn gaman af að skoða þær og ég.   Tilkynningin sem kom í VF í gær var góð og vonandi verður fólk nú duglegt við að skrá sig og borga.  Mikið svakalega held ég að það eigi eftir að verða gaman hjá okkur 17 maíGrin   kv Sigurbjörg

Getur einhver reddað???????????????

Einhver sem að getur komið því við að ath hvort við gætum fengið einhvað íþróttahús til að LEIKA OKKUR Í, Í SMÁ TÍMA. Ef svo er viltu hafa samband við eitthvað af okkur í nefndinni, það væri bara gaman.

kv Nefndin 


Nýjar myndir.

Nýjar myndir er hægt að segja þaðLoL, væri ekki nær að segja hér eru einu flottustu myndir frá fyrri tímaW00t. En allavega eru þetta gamlar góðar myndir sem allir geta haft gaman af og vonandi hlegið sig máttlausa af eins og égGrin.

kv  Karen


20 dagar í skemmtun.

Jæja gott fólk nú fer að styttast í að við munum hafa gaman samanWizard. Eitthvað klikkaði hjá okkur með tilkynninguna Blush en vonandi eru nú flest allir búnir að frétta af þessu. Allavega eru flest allir búnir að fá SMS frá okkurJoyful. EN SAMT ÆTLUM VIÐ AÐ MINNA Á AÐ ÞAÐ ÞARF AÐ BORGA FYRIR 2 MAÍ OG SENDA KVITTUN Á karenasta@msn.com. Endilega verið duglega að kvitta fyrir ykkur og senda okkur smá skilaboð, þó ekki væri nema að gefa okkur smá spark í rassinnTounge.

     kv nefndin.


Gerður bara frábær að gera auglýsinguna fyrir okkur sem mun birtast í Víkurfréttum.

25 ára

 fermingarafmæliÁrgangur  1969

 Partý           Partý           Partý

Sökum fjölda áskoranna hefur Nefndin ákveðið að slá upp veislu í tilefniað 25 ára fermingarafmælis árgangs 1969. Stefnan er að hafa þetta létt og skemmtilegt, byrja snemma og hætta seint. Gleðin verður haldin á Kaffi DUUS (nýi salurinn) laugardaginn 17. maí kl.19.00. Boðið verður upp á pinnamat og barinn verður opinn (vonandi á kostakjörum). Verðinu er stillt í hóf eða kr. 2500 Boðið verður upp á stórkostleg skemmtiatriði frá fermingarsystkinum. Því eru allir hæfileikaríkir beðnir um að hafa með; hljóðfærin, raddböndin eða húmorinn!! Gömlu góðu lögin verða á fóninum svo möguleiki er á smá tjútti og vangadans ef þannig liggur á okkur : ) Mætu öll, rifjum upp gamlar minningar ogskvettum úr klaufunum! 

Sendið skráningu á Karen  fyrir 2. maí og

 staðfestið með því að greiða inn á: 0142-05-71377. kt:3003693089

    Kíkið endilega inn á vefsíðuna:

http://argangur1969.blog.is Allar nánari upplýsingar gefa:

 Karen :  karenasta@msn.com: 848 6229

Sigurbjörg: sigurbjorg69@gmail.is:    6619669

Tóti: toti@iads.is og villatoti@mitt.is : 869 3939

Gerður: gep1@hi.is    8613263

 


Tillögur og skipulag.

Endilega ef að þið hafði svona hugmyndir eins og Þröstur og Kristín þá endilega komið ykkur nokkur saman og myndið skemmtinefnd. Við erum nefnilega að drukkna í verkefnum en værum alveg til í að þið orkuboltarnir munduð sjá um þetta. Við getum svo hjálpað til við að koma tímum saman og auglýsa allt sem væri í boði. Það fer vonandi að koma inn betri upplýsingar og ef einhver á myndir endilega sendið á okkur og við setjum þær inn. En eitt er alveg komið á hreint að dagurinn er 17 maí og mæting verður kl 19:00. Enn og aftur endilega sendið okkur Email og GSM til að við getum sent út skilaboð.

                    kv Karen


Skráning.

Endilega sendið okkur skráningu á Emailin sem eru hér á síðunni. Sem sé á okkur vitleysingana sem stöndum fyrir þessari síðu.  Vil ég biðja ykkur um að senda okkur bæði Email og símanúmer nú eða GSM, því að við munum nota þann háttinn á að senda öllum skilaboð í þessum formum. Nú svo munum við halda áfram að setja inn á síðuna alls konar myndir og skemmtilegheit.

                            kv    Karen.


Fyrstu myndirnar komnar inn

Jæja krakkar, Stína er búin að senda okkur myndir og þær komnar inn.  Endilega ef þið sjáið ykkur fært, þá sendið okkur myndir og við skellum þeim inn.  Takk fyrir þetta Stína

Nýtt Email

Tóti er með annað Email líka sem að þið getið sent á og það er villatoti@mitt.is.  Varðandi allar spurningarnar Kristín mín þá erum við að byrja en vonandi eftir næstu viku getum við komið með fullt af upplýsingum handa ykkur.  Alltaf gott að spyrja því kannski erum við ekki að muna eftir öllu og þá er ekki verra að hafa einhverja til að pikka í okkur.

 

     kv Karen


17 Maí.

Jæja góðir hálsar þetta er dagurinn sem að við erum að hugsa um sem sé 17 maí.  Og erum við að hugsa um að láta þetta byrja kl 19:00. Endilega skráið ykkur hjá einhverju af þessum Emailum sem eru í boði á síðunni. Það eru Karen (karenasta@msn.com , Sigurbjörg sigurbjorg69@gmail.com , Tóti  toti@iads.is og Gerður gep@hi.is  sem munu taka við öllum upplýsingum. 

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband